Verðtilboð í ræstingu fyrir Glerárgötu 26

Akureyrarbær auglýsir eftir tilboðum í ræstingar fyrir Glerárgötu 26. Áætlaður samningstími er 1 ár frá 1. október 2023 - 30. september 2024, með möguleika á framlengingu um 1 ár.


Tilboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með 16. júní.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

Hlekkur í útboðsvefinn: https://ibuagatt.akureyri.is/newapplication.aspx?id=gbfTHbFSrkuIWARj_LxF_g&ref=TO3mM1J2f0uQcdAdGQXYdQ1


Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en kl. 09:50 þann 26. júní 2023. Tilboð verða opnuð sama dag kl 10:00

Nánari upplýsingar um framkvæmd verðtilboðs eða tilboðsgögn veitir Hrafnhildur Sigurðardóttir (hrafnhildursig@akureyri.is) á fjársýslusviði Akureyrarbæjar.