Útboð á veitingarekstri í Hlíðarfjalli

Stjórn Hlíðarfjalls leitar eftir aðila/aðilum til að annast veitingarekstur í Hlíðarfjalli frá 1. janúar til 30. apríl 2022.

Í Skíðahótelinu er u.þ.b. 130 fm. veitingasalur og ágætlega útbúið 50 fm. eldhús til veitingareksturs. Í Strýtuskála er 120 fm. rými á tveimur hæðum (neðri- og miðhæð) ásamt 30 fm. verönd.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent á rafræna útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 3. nóvember 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt á útboðsvefnum fyrir kl. 15:00 mánudaginn 22. nóvember 2021.

Nánari upplýsingar veitir Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður Hlíðarfjalls, netfang: brynjar.helgi@hlidarfjall.is