Útboð á kaupum á flokkunarílátum fyrir Akureyrarbæ

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í kaup á flokkunarílátum fyrir Akureyrarbæ.

Fyrirhugaðar eru breytingar á sorphirðu á Akureyri, með innleiðingu á nýju flokkunarkerfi sem taka skal gildi á vormánuðum 2024.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 23. ágúst 2023.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en kl. 11:00 þriðjudaginn 26. september 2023.

Vinsamlegast athugið að til geta skoðað útboðsgögn sem þið hafið óskað eftir og einnig til að ljúka við að senda inn tilboð þarf að fara inn á eldri útgáfu af Þjónustugátt Akureyrarbæjar. Slóðin á hana er: https://thjonustugatt.akureyri.is/

Kaupandi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inná þjónustugáttinni og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.