Ákveðið hefur verið að gera úrbætur á aðstöðu Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) á Akureyri með því að finna eða byggja nýtt húsnæði fyrir heilsugæslu á tveimur stöðum í bænum, norðurstöð og suðurstöð. Frestur til að skila inn tillögum að uppbyggingu hefur verið framlengdur til 28. september næstkomandi.
Ríkiskaup f.h. Ríkiseigna hefur nú auglýst eftir að taka á leigu húsnæði á hentugri lóð eða í nýlegu húsnæði fyrir norðurstöð heilsugæslunnar.
Akureyrarbær hefur ákveðið að leggja lóðina Skarðshlíð 20 fram sem kost til uppbyggingar á norðurstöð heilsugæslu með þeirri kvöð að einnig verði gert ráð fyrir íbúðum á efri hæðum. Geta áhugasamir lagt fram tillögu að uppbyggingu á lóðinni til samræmis við forsendur sem fram koma í auglýsingu Ríkiskaupa og úthlutunarskilmálum Akureyrarbæjar.
Skila skal inn tillögum með rafrænum hætti í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar innan auglýsts frests sem er til kl. 13:00 þriðjudaginn 28. september 2021.
Er lóðin auglýst samhliða auglýsingu Ríkiskaupa eftir húsnæði fyrir norðurstöð heilsugæslu. Mikilvægt er að hafa í huga að bæði þarf að skila inn tillögu í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar og í gegnum útboðsvef Ríkiskaupa.
Uppfært 13.9: Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skila inn tillögum til 28. september.