Hagamói 9-15 - úthlutun lóðar

Málsnúmer 2024100112

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 432. fundur - 09.10.2024

HHS verktakar ehf. áttu hæsta tilboð í lóðina Hagamóa 9-15 og hefur verið staðfest að þeir vilja halda lóðinni. Félagið hefur skilað inn tilskildum gögnum.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.