Oddeyrargata 30 - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2024090734

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 432. fundur - 09.10.2024

Erindi dagsett 12. september 2024 þar sem að Erna Lilja Helgadóttir fh. Cafe Jensen ehf. óskar eftir því að fá að útbúa bílastæði innan lóðar við Oddeyrargötu 30.
Skipulagsráð getur ekki orðið við erindinu. Mikil umferð gangandi er um Oddeyrargötu og telur skipulagsráð því ekki æskilegt að gerð verði aðkoma inn á lóð yfir gangstétt, sérstaklega þar sem eingöngu er mjó gangstétt öðru megin götunnar.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.