Glerárgata 32 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi

Málsnúmer 2024090710

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 984. fundur - 13.09.2024

Erindi dagsett 12. september 2024 þar sem Helgi Örn Eyþórsson fh. Norðurorku hf. tilkynnir uppsetningu á loftneti og tilheyrandi búnaði á þaki Glerárgötu 32. Leigusamkomulag við eiganda húss liggur fyrir.
Byggingarfulltrúi hefur móttekið tilkynningu um framkvæmdina og staðfestir að hún samræmist skipulagi og sé innan þeirra marka sem tilgreind eru í gr. 2.3.6. byggingarreglugerðar. Tilkynna skal til byggingarfulltrúa þegar framkvæmd er lokið.