Þórunnarstræti 112 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2024081409

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 981. fundur - 22.08.2024

Erindi dagsett 21. ágúst 2024 þar sem Annette de Vink sækir um að bæta við tveimur bílastæðum við hús nr. 112 við Þingvallastræti.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 984. fundur - 13.09.2024

Erindi dagsett 21. ágúst 2024 þar sem Annette de Vink sækir um að bæta við tveimur bílastæðum við hús nr. 112 við Þingvallastræti.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.