Eyrarlandsvegur 14 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2024080063

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 979. fundur - 08.08.2024

Erindi dagsett 1. ágúst 2024 þar sem Hólmgeir Þorsteinsson sækir um úrtak úr kantsteini við hús nr. 14 við Eyrarlandsveg.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.