Styrkur til lagningar ljósleiðara til allra lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli

Málsnúmer 2024070452

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3855. fundur - 11.07.2024

Erindi dagsett 2. júlí 2024 frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu varðandi tilboð til sveitarfélaga um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara til allra lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli. Sveitarfélagið hefur frest til kl. 12:00, föstudaginn 16. ágúst nk., að samþykkja eða hafna tilboðinu en óskað er eftir svari sem fyrst.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tilboð um styrk til lagningar ljósleiðara til allra lögheimila Akureyrarbæjar utan markaðssvæða í þéttbýli.