Álfabyggð 9 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2024050448

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 967. fundur - 17.05.2024

Erindi dagsett 7. maí 2024 þar sem Guðbergur Einar Svanbergsson óskar eftir stækkun á bílastæðaúrtaki við hús nr. 9 við Álfabyggð.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.