Eyrarlandsvegur 12 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2024050322

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 966. fundur - 10.05.2024

Erindi dagsett 7. maí 2024 þar sem Gísli Guðmann sækir um úrtak úr kantstein við hús nr. 12 við Eyrarlandsveg.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 967. fundur - 17.05.2024

Erindi dagsett 7. maí 2024 þar sem Gísli Guðmann sækir um úrtak úr kantsteini við hús nr. 12 við Eyrarlandsveg. Fyrir liggur samþykki skipulagsráðs.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við meðeigendur og nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.