Boginn - úttektir á gæðum gervigrass

Málsnúmer 2024041531

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 162. fundur - 21.05.2024

Lagt fram minnisblað dagsett 17. maí 2024 vegna FIFA gæðaúttektar á gervigrasinu í Boganum.

Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur áherslu á að viðhald gervigrasvalla sé í samræmi við fyrirliggjandi verklag um umhirðu og viðhald gervigrasvalla og samninga Akureyrarbæjar við íþróttafélög þess efnis, með það að markmiði að tryggja endingartíma og gæði vallanna.