Kringlumýri 21 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2024040787

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 966. fundur - 10.05.2024

Erindi dagsett 16. apríl 2024 þar sem Leifur Hjörleifsson sækir um leyfi fyrir stækkun á bílastæði við hús nr. 21 við Kringlumýri.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.