Bjarmahlíð þolendamiðstöð - styrktarbeiðni 2023

Málsnúmer 2023110949

Vakta málsnúmer

Velferðarráð - 1378. fundur - 13.12.2023

Erindi dagsett 22. nóvember 2023 frá Kristínu Snorradóttur teymisstjóra Bjarmahlíðar á Akureyri með von um stuðning frá Akureyrarbæ með framlagi að upphæð 200.000 kr. sem færi í fræðslu- og forvarnastarf. Bjarmahlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis og býður upp á ráðgjöf, aðstoð og upplýsingar fyrir fólk sem beitt hefur verið ofbeldi.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu, þar sem úthlutun styrkja er lokið og bent á auglýsingu styrkja að hausti 2024.