Skarðshlíð - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara

Málsnúmer 2023081493

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 408. fundur - 13.09.2023

Erindi dagsett 25. ágúst 2023 þar sem Grétar Ómarsson f.h. Mílu ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara í Skarðshlíð.

Meðfylgjandi eru skýringaruppdrættir.
Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.