Helgamagrastræti 2 - fyrirspurn varðandi skipulagsmál

Málsnúmer 2023081053

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 408. fundur - 13.09.2023

Erindi dagsett 22. ágúst 2023 þar sem Guðvarður Gíslason f.h. Evros ehf. sækir um rekstrarleyfisskylda gististarfsemi í húsi nr. 2 við Helgamagrastræti.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við að gefið verði út leyfi fyrir rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi í íbúðinni ef hún er leigð út í heilu lagi. Með því móti eykst ekki álag á bílastæði í götunni. Er heimildin með fyrirvara um samþykki allra eigenda í húsinu, sbr. ákvæði Aðalskipulags Akureyrar 2018-2030 um rekstrarleyfisskylda gististarfsemi í fjölbýlishúsum.