Ráðhústorg 7 og 9 og Skipagata 1 - fyrirspurn um skipulagsmál

Málsnúmer 2023061780

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 405. fundur - 05.07.2023

Erindi dagsett 30. júní 2023 þar sem Sigurjón Pálsson f.h. Grand ehf. leggur inn fyrirspurn um hvort heimilt sé að breyta deiliskipulagi miðbæjar á þann veg að hús á lóðum Ráðhústorgs 7 og 9 og Skipagötu 1 yrðu fimm hæðir en ekki fjórar eins og gildandi skipulag segir til um.
Skipulagsráð hafnar erindinu.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.