Kringlumýri 35 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2023040309

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 912. fundur - 19.04.2023

Erindi dagsett 11. apríl 2023 þar sem Örn Þórisson sækir um úrtak úr kantsteini fyrir bílastæði á lóð nr. 35 við Kringlumýri.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 4 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.