Krákustígur 1 - stjórnsýslukæra vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Norður-Brekku

Málsnúmer 2023040101

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 400. fundur - 12.04.2023

Lögð fram kæra Lögmannsstofu Norðurlands dagsett 3. apríl 2023 til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna breytingar á deiliskipulagi sem nær til lóðarinnar Krákustígs 1 (áður Oddeyrargata 4B).
Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að vinna umsögn um kæruna í samráði við lögmann og senda úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ásamt öðrum gögnum sem málinu tengjast.

Skipulagsráð - 408. fundur - 13.09.2023

Lagður fram til kynningar úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 43/2023 í kæru sem varðar breytingu á deiliskipulagi fyrir Norður-Brekku, neðri hluta sem tekur til Krákustígs 1 (áður Oddeyrargötu 4b).