Laufásgata 1 - ítrekun á beiðni um riftun samkomulags um viðbyggingu Strandgötu 53

Málsnúmer 2022111446

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 400. fundur - 12.04.2023

Lagt fram erindi Arnars Sigfússonar dagsett 23. nóvember 2022 f.h. Óss ehf. sem er annar lóðarhafi Laufásgötu 1. Í erindinu er farið fram á að viðbygging við Strandgötu 53 sem nær inn á lóð Laufásgötu 1 verði fjarlægð þar sem bráðabirgðaleyfi var veitt fyrir byggingunni árið 1967.
Skipulagsráð frestar afgreiðslu þar til fyrir liggja viðbrögð eigenda viðbyggingarinnar við ósk um niðurrif hennar.