Sunnuhlíð 12 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022080151

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 876. fundur - 12.08.2022

Erindi dagsett 4. ágúst 2022 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. RA ehf., sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á lóð nr. 12 við Sunnuhlíð. Fyrirhugað er að stækka verslunarmiðstöðina til norðurs og breyta 2. hæð í rými fyrir heilsugæslu. Meðfylgjandi eru uppdrættir eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 877. fundur - 18.08.2022

Erindi dagsett 4. ágúst 2022 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. RA ehf., sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á lóð nr. 12 við Sunnuhlíð. Fyrirhugað er að stækka verslunarmiðstöðina til norðurs og breyta 2. hæð í rými fyrir heilsugæslu. Innkomnar nýjar teikningar 17. ágúst 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 951. fundur - 25.01.2024

Erindi dagsett 25. janúar 2024 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. RA ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á lóð nr. 12 við Sunnuhlíð. Innkomnar teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttir.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.