Flokkun Eyjafjörður - aðalfundur 2017

Málsnúmer 2017030044

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3547. fundur - 09.03.2017

Erindi dagsett 28. febrúar 2017 frá Kristínu Halldórsdóttur stjórnarformanni í Flokkun Eyjafjörður ehf þar sem hún boðar til aðalfundar í Flokkun Eyjafjörður ehf þann 14. mars nk. kl. 14:00 í fundarsal á 2. hæð í Ráðhúsi Akureyrarbæjar.

Meðfylgjandi er ársreikningur félagsins. Gert er ráð fyrir breytingum á 16. grein í samþykktum sem snýr að fjölda manna í stjórn, að fjölga úr fimm í sjö manns.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum.