Norðurgata við Gránufélagsgötu og Víðivelli - ósk um hraðahindrun

Málsnúmer 2015050172

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 205. fundur - 10.06.2015

Á fundi sínum þann 28. maí 2015, vísaði bæjarráð 2. lið úr fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa til skipulagsdeildar:

Friðrik Sigurjónsson mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa og óskaði f.h. fleiri íbúa á svæðinu eftir hraðahindrunum í Norðurgötu við Gránufélagsgötu og Víðivelli.

Meðfylgjandi er uppdráttur af tillögu að úrbótum á gatnamótum Norðurgötu og Eyrarvegar.
Skipulagsnefnd tekur undir áhyggjur íbúa en vísar tillögunni að öðru leyti í vinnu við deiliskipulag Oddeyrar sem nú er í vinnslu.