Bíladagar 2013

Málsnúmer 2013060139

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 447. fundur - 12.06.2013

Erindi í tölvupósti dagsettum 5. júní 2013 frá Páli St. Steindórssyni f.h. Bílaklúbbs Akureyrar þar sem óskað er eftir leyfi fyrir viðburðaskiltum, paintballvelli við Hafnarstræti, græjukeppni við Shell Hörgárbraut og tjaldsvæði á svæði félagsins við Hlíðarfjallsveg.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið og vísar í meðfylgjandi bréf um leyfða staðsetningu skilta og skilyrði vegna þeirra. Haft skal samráð við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra vegna tjaldsvæðis.

Skilti skulu fjarlægð 18. júní n.k. Þrifið skal og gengið frá svæði fyrir paintball eins og tekið var við því.