Íslenska Kjötfélagið - grillvagn

Málsnúmer 2013060124

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 447. fundur - 12.06.2013

Erindi dagsett 10. júní 2013 þar sem Ásgeir Ósmann f.h. Íslenska Kjötfélagsins ehf., kt. 621111-0270, sækir um leyfi fyrir veitingavagni helgina 14. - 17. júní 2013.

Skipulagsstjóri samþykkir að vagninn megi setja niður á reit merktan 2,2 á meðfylgjandi uppdrætti dagana 14. - 16. júní n.k. að uppfylltu samþykki Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.

Varðandi leyfi fyrir vagninum 17. júní þarf umsækjandi að fá leyfi skátanna á Akureyri sem sjá um hátíðarhöldin þann dag.