Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar - stjórnsýslukæra - Ólafur Jónsson

Málsnúmer 2012030151

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3321. fundur - 31.05.2012

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið og kynnti úrskurð UUA vegna kæru Ólafs Jónssonar.
Úrskurðarnefnd vísaði málinu frá.

Ólafur Jónsson D-lista lagði fram eftirfarandi bókun:

Ég vil árétta að ég sendi ekki stjórnsýslukæruna til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (UUA), enda var ég ekki að kæra afgreiðslu skipulagstillögu að deiliskipulagi Dalsbrautar. Ég vildi einungis fá úr því skorið hvort að bæjarstjórn Akureyrar hefði staðið eðlilega og málefnalega að málum þegar ég var álitinn vanhæfur í bæjarstjórn til að taka þátt í umræðu og greiða atkvæði um tillöguna vegna mjög svo almennra athugasemda við tillöguna frá eiginkonu minni og snéru ekki að húseign okkar. Ég sendi því innanríkisráðuneytinu erindið sem ákvað að senda það til UUA og UUA vísar málinu síðan frá þar sem nefndin telur að það sé ekki í hennar verkahring að úrskurða um þetta tiltekna atriði. Ég tel brýnt að það komi fram efnisleg afstaða ráðuneytisins í málinu, ekki síst fyrir bæjarstjórn Akureyrar. Ég lít því svo á að allir bæjarfulltrúar ættu að geta sameinast um það að vinna að því að botn fáist í málið.

Meirihluti bæjarráðs (OHH, GKA, HBR og HJT) lítur svo á að UUA hafi tekið afstöðu til kærunnar og því er ekki ástæða til að fá álit innanríkisráðuneytisins því fyrir liggur endanleg niðurstaða í málinu.