Búsetustefna framkvæmd 2012

Málsnúmer 2012010134

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 1141. fundur - 21.03.2012

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri og Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri lögðu fram drög að siðareglum búsetudeildar.
Ennfremur lögðu þær fram til kynningar Verklagsreglur búsetudeildar, samning um þjónustu samkvæmt reglugerð um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu, nr. 1054/2010.

Félagsmálaráð samþykkir siðareglurnar með þeim athugasemdum sem gerðar voru á fundinum og fagnar nýjum verklagsreglum búsetudeildar.

Félagsmálaráð - 1141. fundur - 21.03.2012

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri, Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri og Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri kynntu áformaðar breytingar í búsetu fatlaðs fólks. Lagt var fram minnisblað Soffíu Lárusdóttur og Guðrúnar Sigurðardóttur dags. 20. mars 2012 og minnisblað Soffíu Lárusdóttur og Önnu Maritar Níelsdóttur dags. 20. mars 2012.

Afgreiðslan er skráð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.