Menningarsmiðjan Populus Tremula - ósk um hærra framlag til styrktarsamnings

Málsnúmer 2011060056

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 100. fundur - 14.06.2011

Erindi dags. 27. apríl 2011 frá Arnari Tryggvasyni f.h. Menningarsmiðjunnar þar sem óskað er eftir að framlög til Menningarsmiðjunnar verði hækkuð þannig að þau mæti að fullu húsaleigugreiðslum fyrir aðstöðu smiðjunnar í Listagilinu.

Stjórn Akureyrarstofu felur framkvæmdastjóra að ganga frá nýjum samningi við Menningarsmiðjuna í samræmi við umræður á fundinum.