Öldrunarheimili Akureyrar - "Edentest"

Málsnúmer 2011040040

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 1121. fundur - 13.04.2011

Félagsmálaráð tók svokallað "Edentest" sem eru könnun sem gerð er á ÖA til þess að fá upplýsingar um upplifun gesta sem heimsækja öldrunarheimilin. Ýmsir gestir hafa tekið þessa könnun, m.a. menntaskólanemar sem eru í samstarfsverkefni með íbúum öldrunarheimila og dagþjónustugesta á hverju vori. Niðurstöðurnar eru nýttar til að bæta þjónustuna og styrkja þróun í starfi.
Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA sat fundinn undir þessum lið.