Háimói 12 - úthlutun lóðar

Málsnúmer 2024110955

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 435. fundur - 27.11.2024

Hrafnkell Fannar Magnússon átti hæsta tilboð í lóðina Háamóa 12 og hefur verið staðfest að hann vill halda lóðinni. Tilskildum gögnum hefur verið skilað inn.
Skipulagsráð samþykkir úthlutunina. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.