Starfsmenn grunnskólanna á námskeiði í Símey
Um 120 starfsmenn grunnskóla Akureyrarbæjar, þ.e. skólaliðar, matráðar, húsverðir, ritarar og stuðningsfulltrúar, tóku þátt í námskeiði hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar (SÍMEY) dagana 17. til 20. ágúst sl.
Þetta er sjötta árið í röð sem Akureyrarbær og Símey vinna saman að þessu verkefni með stuðningi fræðslusjóðanna Sveitamenntar og Mannauðssjóðs Kjalar.
26.08.2015 - 08:51
Lestrar 280