Opnunartími hjá Starfsmannaþjónustu

Eins og áður hefur komið fram vinnur Starfsmannaþjónustan þessa dagana að viðamiklum afturvirkum launaleiðréttingum vegna kerfisbundinnar endurskoðunar á starfsmati sveitafélaga.

Vinnan gengur vel en vegna mikils umfangs og flækjustigs þarf vinna við leiðréttingarnar að fá forgang þar til um miðjan mánuðinn.

Það er því  óhjákvæmilegt að skerða tímabundið opnunartíma hjá Starfsmannaþjónustunni í þessari viku.

Opið verður sem hér segir:

Þriðjudaginn 8. september og miðvikudaginn 9. september verður verður opið eins og venjulega frá kl 11:00 – 16:00.

Fimmtudaginn 10. september og föstudaginn 11. september verður lokað allan daginn en frá 11:00 – 16:00 mun launafulltrúi í afgreiðslu  svara í síma vegna áríðandi erinda sem ekki þola bið. 

Mánudaginn 14. september verður opið eins og venjulega frá 11:00 – 16:00.

Minnt er á að tekið er á móti gögnum sem berast eiga til Starfsmannaþjónustu í  Þjónustuanddyri Ráðhússins en þar er opið frá 8:00 – 16:00 alla virka daga.

Beðist er velvirðingar á því óhagræði sem breyttur opnunartími kann að valda.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan