Mótanefnd NORAK og heilsuráð Akureyrarbæjar hafa tekið höndum saman og skipuleggja hið árlega starfsmannagolfmót Akureyrarbæjar og Norðurorku, NORAK 2015.

Mótið fer fram miðvikudaginn 2. september og verður ræst af 1. teig kl. 16:30. Hægt er að koma óskum um rástíma til mótsstjórnar (sjá nánar í auglýsingu).

Mótanefnd raðar í 3-manna lið eftir forgjöf og mótafyrirkomulagið gefur ÖLLUM færi á að vera með í mótinu, hvort sem menn og konur hafi forgjöf eður ei!

Skráningu lýkur föstudaginn 28. ágúst  sjá nánar í auglýsingu! 

Áhugasamir og áhugaminni eru vinsamlegast beðnir um að lesa auglýsinguna vel og vandlega sem er í viðhenginu og hafa óhikað samband við undirritaðann ef tilefni er til.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan