- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Nú er komið að seinni hluta vinnu við launaleiðréttingar vegna kerfisbundinnar endurskoðunar á starfsmati sveitarfélaga. Vegna vinnu við afturvirkar leiðréttingar launa til 1. maí 2014 er óhjákvæmilegt að skerða tímabundið opnunartíma hjá Starfsmannaþjónustunni í lok þessarar viku og fyrri hluta septembermánaðar.
Opið verður sem hér segir:
Fimmtudaginn 27. ágúst og föstudaginn 28. ágúst verður lokað allan daginn en frá 11:00 16:00 mun launafulltrúi í afgreiðslu svara í síma vegna áríðandi erinda sem ekki þola bið.
Mánudaginn 31. ágúst og þriðjudaginn 1. september verður opið eins og venjulega frá 11:00 16:00.
Miðvikudaginn 2. september, fimmtudaginn 3. september, föstudaginn 4. september og mánudaginn 7. september verður lokað allan daginn en frá 11:00 16:00 mun launafulltrúi í afgreiðslu svara í síma vegna áríðandi erinda sem ekki þola bið.
Starfsfólk í þjónustuanddyri tekur á móti gögnum sem skilað er meðan ekki er opið.
Beðist er velvirðingar á því óhagræði sem tímabundin breyting á opnunartíma kann að valda.