Útrýma kynbundnum launamun
Í byrjun árs var kynnt ný rannsókn sem leiddi í ljós að enn er nokkur munur á launum kynjanna hjá Akureyrarbæ og strax í kjölfarið var settur á laggirnar vinnuhópur sem hefur það hlutverk að greina vandann og gera tillögur til úrbóta. Hópurinn hefur rýnt í fyrirliggjandi tölur og stefnir að því að kynna tillögur sínar fyrir lok októbermánaðar. Bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur Björn Björgvinsson, hefur starfað með hópnum og bindur miklar vonir við að hægt verði að útrýma kynbundnum launamun hjá Akureyrarbæ.
16.10.2013 - 08:16
Lestrar 347