- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Skólaskýrsla 2013 er komin út á rafrænu formi. Markmið með skýrslunni er að birta tölulegar upplýsingar um skólamál
og gera þær aðgengilegar. Í skýrslunni er bæði fjallað um leikskóla og grunnskóla og er þar að finna ýmsar magntölur
yfir nemendur, skóla, starfsfólk og rekstrarkostnað. Í höfuðdráttum er gerð grein fyrir starfsemi hvors skólastigs um sig árið 2012 og
að auki birtar upplýsingar aftur í tímann eins og kostur er. Tölulegar upplýsingar ná til málaflokkanna á landsvísu en einnig er
þeim gerð skil eftir landshlutum og eru að nokkru leyti flokkaðar eftir íbúafjölda sveitarfélaga.
Til viðbótar þessu eru birtar töflur í fylgiskjölum aftast í skýrslunni þar sem valdar lykiltölur eru birtar fyrir hvert sveitarfélag
fyrir sig. Að auki er að finna ýmsan fróðleik um skólamál frá öðrum sviðum sambandsins.
Skýrsluna vann Valgerður Freyja Ágústsdóttir, sérfræðingur á hag- og upplýsingasviði Sambands íslenskra
sveitarfélaga (valgerdur@samband.is).
Skólaskýrsla 2013 er einnig fáanleg í prentuðu formi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga gegn gjaldi, eða 3000 krónur. Til að
panta prentað eintak af Skólaskýrslu 2013 er bent á að hafa samband við Sigríði Ingu Sturludóttur í síma 515 4900 eða í
gegnum netfangið sigridur@samband.is.