Útrýma kynbundnum launamun

Í byrjun árs var kynnt ný rannsókn sem leiddi í ljós að enn er nokkur munur á launum kynjanna hjá Akureyrarbæ og strax í kjölfarið var settur á laggirnar vinnuhópur sem hefur það hlutverk að greina vandann og gera tillögur til úrbóta. Hópurinn hefur rýnt í fyrirliggjandi tölur og stefnir að því að kynna tillögur sínar fyrir lok októbermánaðar. Bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur Björn Björgvinsson, hefur starfað með hópnum og bindur miklar vonir við að hægt verði að útrýma kynbundnum launamun hjá Akureyrarbæ.

Á árunum 2004-2006 fór fram umfangsmikil endurskoðun á launakerfi bæjarins og í kjölfarið voru allar fastar greiðslur vegna yfirvinnu og aksturs felldar niður. Það skilaði góðum niðurstöðum í launakönnun sem gerð var í kjölfarið en miðað við niðurstöður síðustu könnunar virðist þurfa meira til. "Að karlar og konur í sambærilegum störfum með sambærilega menntun og reynslu njóti ekki sömu kjara er náttúrlega ekki boðlegt. Ég vil útrýma kynbundnum launamun hjá Akureyrarbæ og legg höfuðáherslu á að vinnuhópurinn skili tillögum sem gera okkur það kleift," segir Eiríkur Björn.

Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) gerði úttekt á launakjörum starfsfólks Akureyrarbæjar árið 2012 og var rannsókninni sérstaklega ætlað að varpa ljósi á hugsanlegan kynbundinn launamun meðal starfsmanna bæjarins. Helstu niðurstöður voru að óútskýrður launamunur karla og kvenna var 3,9% í heildarlaunum starfsfólks í fullu starfi þegar búið var að taka tillit til menntunar, starfs, deildar, aldurs, starfaldurs og vinnutíma. Óútskýrður launamunur karla og kvenna var 1,5% í dagvinnulaunum starfsfólks uppreiknuð miðað við fulla stöðu þegar búið var að taka tillit til menntunarálags, starfs, deildar, aldurs, starfaldurs og vinnutíma, körlum í vil.

Í úttekt sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði árið 1998 á launum starfsfólks Akureyrarbæjar kom í ljós að þegar búið var að taka tillit til menntunar, starfs, deildar, aldurs, starfaldurs og vinnutíma voru heildarlaun kvenna 8% lægri en heildarlaun karla. Þessi munur var kominn niður í 2-3% árið 2007 en hefur nú hækkað lítillega aftur og er 3,9% í þessari nýju rannsókn RHA. Hvað dagvinnulaunin varðar þá kom í ljós í úttektinni árið 2007 að þegar búið var að taka tillit til áhrifaþátta voru dagvinnulaun kvenna 1,0% hærri en dagvinnulaun karla. Nú hefur þetta snúist við og hafa konur nú 1,5% lægri dagvinnulaun en karlar að teknu tilliti til áhrifaþátta.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan