Frá Goethe-institut og í gegnum Borgarbókasafn Reykjavíkur höfum við fengið litla og mjög svo skemmtilega sýningu á verkum eftir Wolf Erlbruch. Hann er verðlaunaður höfundur og myndskreytari margra barnabóka, og myndskreytti t.d. bókina vinsælu um moldvörpuna sem vildi vita hver skeit á hausinn á henni.