Yfir vetrartímann eru haldnir spila''hittingar'' á Amtsbókasafninu fyrir börn á aldrinum 9-13 ára. Hópurinn hittist á kaffihúsi safnsins aðra hverja viku. Hrönn Björgvinsdóttir, ungmennabókavörður, heldur utan um hann.
Allir krakkar á aldrinum 9-13 ára eru hjartanlega velkomnir! Ekkert þátttökugjald.
Engin þörf er á að skrá sig fyrirfram, nóg er að mæta á staðinn.
Foreldrar og forráðamenn geta fylgst með starfi spilafjörsins í hóp á Facebook. Nánari upplýsingar veitir Hrönn á netfanginu: hronnb@amtsbok.is
Dagsetningar spilafjörsins er að finna í viðburðadagatali Amtsbókasafnsins.