... að þú getur opnað síðuna gegnir.is og slegið beint inn "dvd amaan" og þá færðu lista yfir 3000 nýjustu mynddiskana sem safnið á? (amaan er kóði fyrir útlánadeild Amtsbókasafnsins á Akureyri)
... að fjöldi þeirra sem hafa sett "Like / Mér líkar við" við Facebook síðu Amtsbókasafnsins nálgast 1000?
... að sýningunni um Einar H. Kvaran fer að ljúka?
... að hægt er að skila bókum í Pennann Eymundsson í Hafnarstræti ef bókasafnið er lokað?
... að enginn hefur enn notfært sér "Spurningar"-dálkinn hér til hægri á heimasíðunni?
... að á www.timarit.is getur þú flett upp og blaðað í ótrúlegum fjölda tímarita og dagblaða?