Á hefðbundnum fimmtudegi lánast oft á bilinu 80 til 100 DVD-diskar á Amtsbókasafninu. Það eru yfirleitt vinsælustu útlánadagarnir þar sem þeim diskum þarf ekki að skila fyrr en á mánudegi.
Algjör sprengja var rétt fyrir páska en á tveimur dögum lánuðust alls 447 DVD diskar sem þurfti svo ekki að skila fyrr en eftir páska.
Meðaltal á mánuði árið 2011 (janúar, febrúar og mars) eru 1430 DVD diskar. Alls lánuðust 4288 DVD diskar fyrstu þrjá mánuði ársins.