Viltu prjóna með okkur einstakan Amtsbókaorm?

Prjónakarfa Amtsbókaormsins
Prjónakarfa Amtsbókaormsins

Við erum byrjuð að prjóna einstakan Amtsbókaorm og viljum gjarnan fá aðstoð frá ykkur, kæru viðskiptavinir.

Karfa með prjónum og hnyklum er hjá sófanum í handverksbókunum og við hvetjum alla til að prjóna nokkrar lykkjur.

Við gerum okkur vonir um að Amtsbókaormurinn okkar verði bæði langur og litfagur þannig að ef þið eigið garnafganga er ykkur velkomið að leggja ykkar hnykla í körfuna líka :-)

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan