Vildum gera leikskólana sýnilegri - Ný sýning opnar á Amtsbókasafninu

Leikskóli

Á Amtsbókasafninu hefur verið opnuð sýning þar sem fimmtán leikskólar kynna starf sitt, þó aðeins að litlum hluta. Eins og gefur að skilja er starf þeirra æði fjölbreytt og yfirgripsmikið og leikskólastjórar og starfsfólk hafa átt úr vöndu að velja varðandi sýninguna.

Sýningin stendur allan febrúarmánuð en allir þrettán leikskólarnir á Akureyri eiga muni á sýningunni auk leikskólanna á Svalbarðsströnd og í Eyjafjarðarsveit.

Leikskóli?Þarna er aðeins örlítið brot af því sem leikskólarnir gera,? segir Hrafnhildur Sigurðardóttir, leikskólafulltrúi á skóladeild Akureyrarbæjar. Hún ræddi við heimasíðuna ásamt fulltrúum frá Síðuseli, Pálmholti og Lundarseli.

?Sumt af því sem við sjáum er í tengslum við þróunarverkefni, Lundarsel gerði til að mynda verkefni í heimspeki og Krógaból, Síðusel og Sunnuból í lífsleikni,? segja þær og bæta við að þær séu vanar að vinna með lítil pláss og því hafi reynst þeim auðvelt að setja þessa stóru sýningu upp á fremur litlu svæði!

LeikskóliSýningin er sett upp í tilefni af Degi leikskólans sem er 6. febrúar. ?Við vorum að reyna að finna út hvernig við getum sýnt hvað við erum að gera, og að gera leikskólann sýnilegri. Þar er unnið einstaklega fjölbreytt starf. Aðalnámskrá leikskóla er til staðar en á Akureyri getur hver leikskóli unnið eftir sínu höfði samkvæmt henni og sett upp sína stefnu, jafnvel með áherslu á málaflokka. Samt sem áður er rauður þráður í gegnum alla leikskólanna vegna námskrárinnar,? segir Hrafnhildur.

Við hvetjum alla til að kynna sér fjölbreytt og áhugavert starf leikskólanna á Amtsbókasafninu í febrúar.
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan