Krógaból - Uppskeruhátíð

Fiðrildi frá Krógabóli
Fiðrildi frá Krógabóli

Uppskeruhátíð leik- og grunnskóla á Akureyri verður haldin 7. -21. maí. Af því tilefni hafa krakkarnir á Krógabóli sett upp sýningu á verkum sínum hér á Amtsbókasafninu. Litrík og falleg sýning sem sækir innblástur í nokkrar sígildar barnabækur.

Krógaból uppskeruhátíð

Í vetur hafa börnin verið að vinna með bækur sem tengjast dygðunum okkar og okkar nær umhverfi. Í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar var ákveðið að setja upp sýningu hér á Amtbókasafninu.

Krógaból

Heilsuleikskólinn Krógaból er 5 deilda leikskóli þar sem 107 börn stunda nám. Leikskólinn leggur áherslu á að börnin tileinki sér lífsleikni í gegnum allt nám leikskólans. Lífsleikni byggist á alhliða þroska, færni til samskipta, rökrænnar tjáningar og að bera virðingu fyrir umhverfi sínu. Lögð er áhersla á að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á hreyfingu og næringu í leik og starfi.

 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan