Skapandi skrif // Skapandi hugsun
Andri Snær Magnason rithöfundur verður með námskeið í skapandi skrifum og skapandi hugsun fyrir 18 - 25 ára.
Andri Snær Magnason rithöfundur verður með námskeið í skapandi skrifum og skapandi hugsun fyrir 18 - 25 ára.
Bækur Andra hafa komið út í 30 löndum og hann hefur fengið íslensku bókmenntaverðlaunin í öllum flokkum. Hann hefur skrifað barnabækur, ljóð og vísindaskáldsögur, hann skrifaði Draumalandið og leikstýrði heimildarmynd og hefur skrifað fyrir leikhús.
Ritlistin teygir anga sína í allar áttir og mun Andri Snær miðla af reynslu sinni á námskeiði sem ætti að vera hugvíkkandi og hvetjandi fyrir alla sem vilja feta listabrautina í framtíðinni.
Námskeiðið fer fram þann 10. október í Verkmenntaskólanum á Akureyri frá kl. 13:00-17:00.
Námskeiðið er hluti af samkeppni sem er samvinnuverkefni Amtsbókasafnsins, Akureyrarstofu, Ungmenna-Hússins upplýsinga- og menningramiðstöðvar í Rósenborg, Verkmenntaskólans á Akureyri og Menntaskólans á Akureyri. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Eyþings.
Námskeiðið kostar ekki neitt en takmarkað sætaframboð!
Skráning á ungskald@akureyri.is