Pakkaðu inn jólagjöfum á umhverfisvænan máta á Amtsbókasafninu í desember.
Við höfum nú breytt sýningaraðstöðu Amtsbókasafnsins í umhverfisvæna innpökkunarstöð sem gestum og gangandi er velkomið að nota.
Á staðnum eru blaðsíður úr afskrifuðum bókum, könglar, greni og fleira sem hægt er að nýta í innpökkunina. Eins ef fólk lumar á jólapappír, pakkaskrauti og merkimiðum heima hjá sér sem það vill síður nota, þá má endilega koma með allt slíkt á innpökkunarstöðina.
Verið velkomin á innpökkunarstöð Amtsbókasafnsins!