Nú er okkar árlega jólabókaflóð í hámarki og bókafólk keppist við að lesa og gagnrýna þær bækur sem streyma á markað. Sumar bækur fá meiri athygli en aðrar og nokkrar fá bæði tilnefningar og verðlaun.
Hér höfum við tekið saman þær bækur sem nýverið hafa fengið viðurkenningar frá starfsfólki bókaverslana og verið tilnefndar til íslensku bókmenntaverðlaunanna, íslensku þýðingarverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna, Norrænu barnabókaverðlaunanna og bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.