Amtsbókasafnið leitast alltaf eftir því að auka þjónustu sína og auka aðgengi á safninu. Framundan eru breytingar en nánari útfærsla á því verður kynnt síðar.
Nýjar hillur voru fengnar á safnið og verður hluti bókakostsins færður. Þannig verður lestrarsalurinn nýttur betur.
Eins og sjá má er vinna í fullum gangi en hún á ekki að skapa óþægindi fyrir gesti safnsins.