Tilboðsmyndir í janúar 2012

Þrátt fyrir að hafa lækkað verðið á flestum mynddiskunum úr 400 kr. niður í 200 kr. útlán, þá höldum við auðvitað tilboðsmyndunum áfram, bæði í barnadeild og á 1. hæðinni. Nú hefur verið skipt um þema í tilboðsmyndunum á 1. hæðinni og það er "Bókamyndir". Eins og orðið hljómar, þá eru þetta kvikmyndir sem byggðar hafa verið á bókum.

Þetta eru ekki allar kvikmyndirnar sem við eigum sem hafa verið byggðar á bókum, heldur valdar úr þeim hópi. Þess má líka geta að við eigum megnið af þessum bókum sem myndirnar eru byggðar á. Þú kemur nefnilega ekki að tómum kofanum hjá okkur :-)

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan